Kraftaverk Sími 898 1959 |
Logo |
Logopond |
||
25.11, 2013 Þessi mynd er
upphafalega a-ið í tillögu að skrift
fyrir hljómsveitina STRAX.
Tillögunni var hafnað, en ég hef notað
þetta "a" nokkrum sinnum síðan í
tillögugerð að merki án árangurs.
Til gamans má þó geta þess að
það var valið á sínum
tíma í eina af LOGOLOUNGE bókunum
ásamt 19 öðrum af lógóum sem
ég hef hannað. Þau hefðu eflaust
orðið fleiri, hefði ég greitt
áskriftina lengur en í eitt
ár. 12.11,
2013 STASI
bréfsefni sem mér áskotnaðist
á Berlínarárunum - STASI er
skammmstöfun fyrir hina alræmdu
öryggislögreglu Austur Þýskalands
(Ministerium für Staatssicherheit) sem fylgdist með
og njósnaði um nánast alla
íbúa landsins og hélt í
heljargreipum allt þar til múrinn féll
1989. Bréfsefnið lætur lítið
yfir sér, en án efa skulfu margir á
beinunum sem fengu það inn um lúguna
hjá sér á sínum tíma.
18.10,
2013 Mad
Men 05.10,
2013 Poster
Screen Shot 26.09,
2013 Sober
TV 21.09,
2013 Happening 17.09,
2013 Stundum koma
verkefni inn á borð til mín þar sem
ég er beðinn um að uppfæra merki
án þess að hanna nýtt. Í
tilfelli SVFR var einungis til gamalt afrit sem
búið var að ljósrita aftur og aftur og
merkið því ekki lengur svipur hjá
sjón - En þótt merkið væri
trosnað, var það engu að síður
ákaflega heilagt í hugum félagsmanna og
því áríðandi að breyta
því sem minnst en einungis vinna til baka
teikninguna, laga leturgerðina og
stílfæra. Í
síðara tilfellinu þ.e. merki SAMVERKS,
byggði ég á formunum sem voru til
staðar og náði að flytja karakterinn
úr gamla merkinu yfir í það
nýja eins og óskað var en samt skapa
nýja ímynd með samþættingu
forma og leturs. Í fyrra
tilfellinu (SVFR) skrifa ég mig ekki fyrir
höfundarétti merkisins en í
því síðara (SAMVERK) er breytingin
það mikil að ég ég tel mig
höfund þess. 10.09,
2013 Dancing
Aliens 12.10,
2013 My favorite Chair at the
office. Fann þennan í
ruslahaug fyrir mörgum árum - Þrátt
fyrir grænt þvælt
plussáklæði, blasti við
stílhreint formið - Hirti hann og lét
klæaða í gráan og rauðan vinyl.
- Mikið uppáhald. 11.09,
2013 Unused 07.10,
2013 Unused
Kraftaverk auglýsingastofa - Sími 898 1959 -
kek@kraftaverk.is